Gæsunin hennar frænku minnar Glófríði AKA Eygló...
Egilshöll:
Byrjunin var sú að ég mæti um 10 leytið niðrí vinnu, og ætla að
æfa með henni Eygló svona áðuren ég byrja að vinna, jájá við tókum
æfingu saman síðan alltíeinu fær hún vídeó cameru uppí fésið á sér
í miðri magaæfingu, en þá eru kollegar hennar mættar á svæðið
Írfríður og Gyðfríður og tilkynntu henni að nú væri komin tími á að
gæsa... Fékk Eygló þá 12 mín og ekki meir til að koma sér í sturtu
og vera tilbúin annars fengi hún 50 armbeygjur í refsingu og þá
erum við ekki að tala um einhverjar kellingar armbeygjur heh... en
hún náði að slá sitt sturtu met allrækilega, hún er nefnilega þekkt
fyrir að tjah taka svona 45+ mín sturtur alltaf... Hún náði að fara
í sturtu á 12 mínútum, en þá var hún bundin fyrir augun og var hún
klædd í leðurgalla, henni var síðan leitt út fyrir Egilshöll þar
sem við biðum eftir óvæntu að koma til okkar... Við vorum alveg
gríðalega heppin með veður, sólin skein og vindurinn ekki mikill...
þannig að við afhenntum henni kaldan bjór til að kæla sig niður...
Eftir smá stund heirum við flott hljóð í einhverju tæki, þá er
kærasti hennar Gyðu (Bergþór) mættur á svæðið á trylli mótorhjóli
og pikkar Eygló upp... Hún þóttist ekki vera neitt smeik, en ég sá
samt smá á henni að hún var ekki aaaalveg sallaróleg hehe... Hann
tók hana á góðan rúnt í bænum. Við hin á meðan hittumst öll á
Vegamótum til að taka á móti henni þar...
Vegamót:
Við áttum pantað borð inni en vegna góðs veðurs þá afpöntuðum
við það og settumst úti í blíðuni, þar kom síðan Eygló á kagganum
fallega leðurklædd hehe... Tókum við vel á móti henni og gáfum
henni smá gjöf: Dress nr. 1 hehehe... Svört
gúmmístígvél, ullar undirbuxur með typpagati (föðurland), falleg
blá hawaii skyrta, ullar eyrnarband, rautt der og vel túberað hár
upp í loft,l vel sexy kona
... Við vorum öll orðin vel svöng
þarna þannig að við áttum pantaðan sér eldaðan mat handa okkur sem
er ekki á matseðli, kjúklingaspjót á salati með karrýsósu naaaammmi
naaaaammm, þegar það er svona heitt í veðri þá verður maður að kæla
sig niður með smá ís, þannig að hún Emmfríður AKA Emelía bíður
öllum ís þetta yndi, en hún Eygló fékk samt La Speciale
Icecreama... Það var stór diskur skreyttur allskonar ávöxtum
súkkulaði og ís en í formi PÍKU, ó mæ lordie ég
emjaði úr hlátri og líka sérstaklega þegar hún var beðin um að nota
engin hnífapör til að borða eftirréttinn... en hún fékk samt að
sleppa við það hehehe !!! jæja þá var það næsta stoppistöð
Keiluhöllin
Hittumst öll í keiluhöllini í einn leik, skiptum í 2 lið... mitt
lið vann sjibby... !!! Annars var mjög fyndið að fylgjast með Eygló
því hún var orðin soldið ölvuð þarna hehe... Já by the way við
vorum með nesti handa henni allan tíman, nokkra breezera og Ópal
flosku til að fríska hana aðeins upp
Eftir leikin sendum
við hana í smá dans fjör, það var einhver svona dans tölvuleikur
þarna sem danssporin eru örvar á gólfinu og svo á hún að nota
fæturnar til að stíga á réttan reit... ég er með mynd af þessu ...
takið eftir hvað þetta er líkt robot dansinum haha

Tívolí
Við fórum með gæsina í smá ferð í tívolíð, gæruni fannst það
voða gaman, bara leiðinlegt hvað þessi tæki gáfu henni engan
fiðring í magan, ekki einusinni freak out tækið sem er "stærsta"
tækið:

Stelpukjánin er jú búin að prufa svo margt sem tengist adrenalíni
þannig að það er engin furða að þetta gaf henni engan fiðring, en
hún skemmti sér vel samt sem áður
Dress nr 2
Eftir tívolí var brunað uppí HFJ á sminnk stofa þar, áður en hún
fór í sminnk þá var hún Guðrún hárgreiðlsukona svo yndisleg að búa
til smá nesti handa okkur, heimabakað brauð, flatbrauð með
allskonar áleggi, ferskir ávextir og kleinur hehe settumst fyrir
utan stofanu á gangséttina og létum fara vel um okkur með gott
nesti... Eftir að við vorum búin að háma í okkur mat þá var farið
með hana Eygló okkar inná stofuna í smá breytingu, hún fékk dress
númer 2 í hendurnar og varð að skipta um áður en sminnkið var sett
á andlytið.
FYRIR:

EFTIR:

ALGJÖR SKUTLA HEHEHE 
Súlan
Eftir sminnk þá var brunað uppí Egilshöllina, þar fyrir utan
beið pallur með súlu á... Jú svona skutla í flottu dressi verður að
sýna listir sínar á súluni, engin spurning... Það var svoldið
erfitt að fá hana til að byrja, við þurftum liggur við að draga
hana upp á hárinu til að byrja... En þegar hún loksins byrjaði að
sýna listir sínar þá stóð hún sig bara nokkuð vel, held að hún gæti
alveg farið pro hehe... En jú hún kom bara alls ekkert illa út
þarna á súluni einsog sjá má hér:

Sumt var erfiðara en annað þannig að hún fékk smá hjálp líka

Ef einhver hefur áhuga að kynna sér þessa íþrótt (Pole Fitness)
þá er hún í boði Heilsuakademíunar í haust hægt er að kynna það sér
betur á heimasíðuni http://ha.is/seminars.php?id=43
Gullöldin
Eygló var orðin svo þyrst eftir allt þetta púl á stöngini þannig
að við ákváðum að stoppa við á bar sem heitir Gullöldin sem er
staddur í grafarvoginum... Eygló var reyndar ekkert sú eina var
þyrst, við vorum öll frekar þyrst og fengum okkur flest einn til
tvo kalda öllara, sumir skoluðu niður með skoti líka hehe
Hjemme hos Guðrún
Eftir Gullöldina þá lögðum við af stað til Guðrúnar í gott
grill, úff hvað maður var svangur eftir þetta allt saman... maður
guðrúnar sá um grillið og var í boði grillað lambalæri... Úff hvað
þetta var gott, og var borða gat á magan hehe... Eftir matin var
farið í singstar keppni sem var heldur skrautlegt, mitt lið
tapaði... sennilega útaf mér, margir segja að svo rosaleg stór
hluti af hommum vilja verða söngvarar, eeeeeen ég er allavega ekki
í þeim hópi úfff... Ég er hrikalegur söngvari
en það skiptir
engu máli í kareókí, bara að vera með og hafa gaman af því, og það
geru allir, þetta var mjög gaman og var hlegið mikið hehe... Eftir
skamma stund þá var borið fram þessa rosaega fallega marsípanskaka,
en engin venjuleg kaka samt sem áður... Þetta var nakin kvenmaður,
pjása og túttur tíhíhíhí... ég er ekki mikið fyrir kvenmenn en
þessi smakkaðist rosalega vel... Ef allar konur eru svona á bragðið
kannski maður fari að skipta um skoðun, hvað finnst ykkur? hmmm
Mikið spjall og tjútt var heima hjá Guðrúnu og kl orðin margt,
en það voru ekki allir tilb. að slappa af og koma sér heim... Gæsa,
Íris, ég og Svanfríður ákváðum að skella okkur nirrí bæ og enda
kvöldinu þar.
Q-Bar
Við ákváðum að bruna á Q-Bar og eyða það sem eftir var af
kvöldinu þar... Þar var bara bjór og tjill og var bara besta ending
á frábærum skemmtilegum degi... Takk fyrir mig, og vonandi skemmtir
þú þér vel yndislega frænkan mín Glófríður 

Skoðununarkönnunin leiddi í ljós að hann
Alexander Petersson
flestir vilja hoppa uppí ból með þessum manni samkvæmt
könnunini, kom mér alls ekki á óvart þar sem þarna er á ferðinni
mjög myndarlegur maður.
Næst á eftir honum er rosalega myndarleg stúlka:
Ragnhildur Steinunn

kemur mér alls ekki að óvart að hún hreppti annað sætið.
Jógvan 14%
Jóhanna Sigurðardóttir
0%
Geir Haarde
0%
Unnur Birna
5%
Þröstur í Mínus 9%
Alfreð Gíslasson
5%
Ragnhildur Steinunn 27%
Dorrit forsetafrú
5%
Alexander Petersson 36%
Sigga Beinteins
0%
ATH: Taka þátt í nýrri könnun takk fyrir og eigðu yndislegan dag
!!